Um okkur

Ég rek lítið en öflugt samstarfsnet sérfræðinga með áralanga reynslu í uppsetningu, þróun og rekstri vefsíðna. Sjálfur leiði ég verkefnin, en eftir þörfum vinn ég með völdum verktökum og fagfólki til að tryggja bestu mögulegu lausn hverju sinni. Með yfirgripsmikla þekkingu á helstu vefumsjónarkerfum, þar á meðal WordPress, Drupal, Shopify og Wix, hjálpa ég fyrirtækjum að byggja upp trausta og skilvirka stafræna nærveru.

Ég legg áherslu á fagmennsku, áreiðanleika og persónulega þjónustu. Hver vefsíða er sniðin að þörfum viðskiptavinarins, hvort sem um er að ræða einfaldan kynningarvef, netverslun eða flóknari lausnir. Ég fylgi verkefnum eftir frá fyrstu hugmynd til fullunnar lausnar – og áfram með rekstur, viðhald og stöðuga þróun, með stuðningi samstarfsaðila þegar þörf krefur.

Reynsla mín spannar allt frá hönnun og tæknilegri uppsetningu til hýsingar, öryggis og afkastastýringar. Með því að nýta réttan mannskap fyrir hvert verkefni tryggi ég að vefurinn þinn sé öruggur, hraðvirkur og aðgengilegur – og styðji við markmið þín.

Markmið mitt er einfalt: að gera vefinn þinn að öflugu verkfæri sem vinnur fyrir þig.

Helgi Páll Þórisson

Tæknilega bakbeinið
helgi@midheimar.is
s: 861 4939

Samfélagsmiðlar og aðrar leiðir til að hafa samband https://www.tenglar.is/@helgipall