# Gervigreindin er ekki að fara gera okkur öll atvinnulaus!

- Link: https://midheimar.is/2026/11/18/gervigreindin-er-ekki-ad-fara-gera-okkur-oll-atvinnulaus/
- Published: 2026-11-18T20:12:10+00:00
- Author: Helgi Páll

Það er mikið rætt um að gervigreind muni gjörbreyta hugbúnaðargeiranum, jafnvel 
útrýma stórum hluta hans. Vissulega er gervigreind að breyta því hvernig hugbúnaður
er þróaður og hún mun án efa hafa mikil áhrif á störf og viðskiptamódel í greininni.
En það er stórt stökk að halda því fram að hún muni leggja hugbúnaðargeirann í rúst.

Það er nefnilega eitt sem gleymist oft í þessari umræðu: **Megnið af þeim hugbúnaði
sem heimurinn notar í dag er þegar til.**

Í fyrirtækjum, stofnunum og samfélaginu öllu eru gríðarlegt magn af kerfum sem hafa
verið í þróun og rekstri árum, jafnvel áratugum saman. Þessi kerfi halda utan um
fjármál, pantanir, birgðir, samskipti, framleiðslu og ótal aðra mikilvæga starfsemi.
Þau hverfa ekki þótt gervigreind geti skrifað nýjan kóða á nokkrum sekúndum.

Þennan hugbúnað þarf áfram að hýsa, reka, vakta, uppfæra, tryggja og laga þegar 
eitthvað bilar. Það þarf að halda utan um gagnagrunna, netþjóna, öryggisafrit, tengingar
við önnur kerfi og allar þær ósýnilegu tæknilegu undirstöður sem gera stafræna starfsemi
mögulega.

Og það þarf að gera þetta áfram, ár eftir ár.

Gervigreind getur vissulega hjálpað til við viðhald, villuleit, endurbætur og jafnvel
endurskrif eldri kerfa. Hún getur gert margt hraðar og ódýrara. En hún tekur ekki
sjálfkrafa ábyrgð á rekstrinum. Hún tryggir ekki að kerfin séu uppi á mánudagsmorgni,
að gögnin séu heil eða að greiðslukerfið virki þegar á reynir.

Það er líka mikilvægt að átta sig á því að nýr hugbúnaður verður sjálfur að eldri
hugbúnaði með tímanum. Kóðinn sem gervigreind skrifar í dag þarf líka að hýsa, viðhalda,
uppfæra og reka á morgun.

Ég held því að framtíð hugbúnaðargeirans sé ekki að hverfa, heldur að breytast. 
Þróunin verður hraðari, verkfærin öflugri og sum verkefni mun sjálfvirknivæðast.
En þörfin fyrir fólk og fyrirtæki sem skilja, reka, samþætta og bera ábyrgð á hugbúnaðarkerfum
mun ekki hverfa.

**Gervigreindin getur hjálpað okkur að skrifa kóðann. En einhver þarf enn að sjá
til þess að heimurinn gangi áfram þegar kóðinn er kominn í rekstur.**
